Sérsveitin handók mann í Naustahverfi

Sérsveitin handók mann í Naustahverfi

Sérsveit Ríkislögreglustjóra og lögreglumenn á Akureyri voru með talsverðan viðbúnað við fjölbýlishús í Ásatúni í Naustahverfinu á Akureyri fyrr í dag.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Akureyri segir að lögreglan hafi verið kölluð út að íbúðinni vegna hávaða frá pari og gruns um heimilisofbeldi.

„Er lögreglan kom á vettvang var konan komin út úr íbúðinni en maðurinn var enn innandyra og hafði í hótunum við lögreglumenn. Maðurinn var mjög æstur og talinn vera í annarlegu ástandi. Skorað var á hann að gefa sig fram við lögreglu en hann neitaði því staðfastlega. Eftir frekari samskipti við manninn mat lögregla aðstæður þannig að ekki væri unnt að skilja hann eftir einan í þessu ástandi. Tryggja yrði öryggi hans og annarra í húsinu,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Eftir árangurslausar samningaviðræður við manninn, fór sérsveit Ríkislögreglustjórans inn í íbúðina og handtók hann kl. 14:24. Nokkur viðbúnaður var á vettvangi meðan á þessu stóð og stýrðu lögreglumenn m.a. aðgangi að húsinu. Enginn meiddist í þessari aðgerð og fer málið nú í hefðbundinn rannsóknarfarveg.

https://www.facebook.com/logreglannordurlandieystra/posts/2794560530796212
Sambíó

UMMÆLI