Prenthaus

Sex gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Sex gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Sex einstaklingar gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Heimir Örn Árnason og Ketill Sigurður Jóelsson sækjast eftir því að leiða flokkinn.

Frambjóðendur eru eftirtaldir í stafrófsröð:

Heimir Örn Árnason, deildarstjóri býður sig fram í 1. sæti
Hildur Brynjarsdóttir, þjónustufulltrúi býður sig fram í 2. sæti
Ketill Sigurður Jóelsson, verkefnastjóri býður sig fram í 1. til 2. sæti
Lára Halldóra Eiríksdóttir, námsráðgjafi og varabæjarfulltrúi býður sig fram í 2. til 3. sæti
Þórhallur Harðarson, fjármálastjóri og varabæjarfulltrúi býður sig fram í 4. sæti
Þórhallur Jónsson, bæjarfulltrúi býður sig fram í 2. til 3. sæti.


Prófkjörið fer fram í Brekkuskóla laugardaginn 26. mars nk. kl. 10:00 til 18:00 og kosið verður um fjögur efstu sæti framboðslistans. Þátttaka er heimil öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum í sveitarfélaginu og þeim sem ganga í Sjálfstæðisflokkinn fyrir lok kjörfundar.

Utankjörfundarkosning í prófkjörinu fer fram í Kaupangi fimmtudaginn 17. mars kl. 15:30 til 18:30, laugardaginn 19. mars kl. 10:00 til 14:00 og fimmtudaginn 24. mars kl. 15:30 til 18:30 og í Valhöll virka daga 21. til 25. mars kl. 10:00 til 16:00.

UMMÆLI

Sambíó