Sex handteknir eftir meiriháttar líkamsárás við Glerártorg

Sex handteknir eftir meiriháttar líkamsárás við Glerártorg

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur síðastliðinn sólarhring haft til rannsóknar meiriháttar líkamsárás, rán og eignaspjöll sem áttu sér stað á bifreiðastæði við verslunarmiðstöðina Glerártorg síðastliðið Sunnudagskvöld. Þar var veist að 16 ára pilti með hamri og hann sleginn í höfuðið auk þess að bifreið, sem hann var farþegi í, var skemmd. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.

„Sex piltar fæddir frá 2003 til 2005 voru handteknir vegna málsins og voru þeir vistaðir í fangahúsi vegna gruns um aðild að málinu. Fjöldi yfirheyrslna hafa verið framkvæmdar vegna málsins og lauk þeim að mestu í gærkvöldi með aðstoð barnaverndarfulltrúa. Þá var einnig rætt við vitnin í gær og leitir framkvæmdar í bifreið og húsnæði. Við leit fannst hamar sem talinn er tengist málinu. Rannsókninni miðar vel og er hún langt á veg komin. Málsatvik eru nokkuð ljós og voru hinir handteknu látnir lausir að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Bergur Jónsson, rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglunni á Akureyri, segir í samtali við fréttastofu RÚV að málið sé afar umfangsmikið og fjölmargir hafi verið yfirheyrðir vegna málsins í gær.

„Þetta eru mjög ungir piltar og við lítum þetta mál alvarlegum augum. Við leit fannst hamar sem var notaður við árásina. Rannsókn miðar vel og er langt á veg komin. Málsatvik eru nokkuð ljós. Við slepptum þeim eftir yfirheyrslur í gærkvöldi,“ segir Bergur í samtali við fréttastofu RÚV. Hann segir að fórnarlambið hafi leitað á slysadeild en sé á batavegi.

Á vef RÚV kemur fram að málið tengist sölu á dýru Gucci belti. Það hafi soðið upp úr þegar viðskiptin fóru fram á bílastæðinu við Glerártorg. Auk líkamsárásar eru piltarnir sakaðir um rán og eignaspjöll. 

UMMÆLI

Sambíó