Síðustu forvöð að sækja um vegna AkureyrarvökuMynd: Bjarki Freyr Brynjólfsson.

Síðustu forvöð að sækja um vegna Akureyrarvöku

Frestur til að sækja um stuðning vegna viðburða á Akureyrarvöku 2022 rennur út föstudaginn 5. ágúst.

Akureyrarvaka verður haldin hátíðleg 26.-28. ágúst nk. og nú auglýsir Akureyrarbær eftir fjölbreyttum hugmyndum að spennandi dagskrá og viðburðum.

Þetta er tilvalið tækifæri fyrir skapandi einstaklinga og listafólk til að láta ljós sitt skína á Akureyrarvöku sem er eins konar afmælisveisla Akureyrarbæjar.

Góðum hugmyndum verður veittur stuðningur á bilinu 50.000 til 300.000 kr.

Sótt er um rafrænt í gegnum heimasvæði Akureyrarvöku á www.akureyrarvaka.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Nánari upplýsingar veitir Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála í netfanginu almara@akureyri.is.

Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2022.

Sambíó

UMMÆLI