Sigríður Stefánsdóttir hefur tekið við formennsku í stjórn Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) af Silju Báru Ómarsdóttur. Sigríður hefur verið varaformaður undanfarin þrjú ár, átti sæti í stjórn Eyjafjarðardeildar félagsins frá 2021, verið sjálfboðaliði allt frá 2017 og er búsett á Akureyri.
Silja Bára sat í stjórn félagsins frá árinu 2018 og var formaður síðustu þrjú árin. Hún var nýverið kjörin rektor Háskóla Íslands og tekur við því embætti í júlí. Formannsskiptin áttu sér stað á fundi stjórnar Rauða krossins í gær, 18. júní.
Sigríður er með BA-próf í almennum þjóðfélagsfræðum frá Háskóla Íslands og framhaldsnám í Þýskalandi í stjórnmálafræði. Hún hefur einnig lokið kennsluréttindanámi. Sigríður kenndi félagsfræði og stjórnmálafræði við Menntaskólann á Akureyri auk þess að sinna stjórnunarstörfum hjá Akureyrarbæ á árunum 1998 til 2017. Þá var hún bæjarfulltrúi og bæjarráðsmaður á Akureyri á árunum 1984-1998 og forseti bæjarstjórnar í tvö ár. Hún átti sæti í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjölda nefnda og ráða á sveitarstjórnarstigi og hjá ríkinu.
Vill fjölga sjálfboðaliðum og tryggja starf um allt land
Rauði krossinn starfar um heim allan og eru fjölmennustu og útbreiddustu hjálparsamtökin. Á Íslandi fagnaði félagið 100 ára afmæli á síðasta ári og hefur því í heila öld sinnt fjölmörgum verkefnum.
„Ég tek við starfi formanns með mikilli auðmýkt, tilhlökkun og virðingu fyrir öllum þeim sem starfa fyrir Rauða krossinn, bæði sjálfboðaliðum og starfsfólki,“ segir Sigríður. „Í samvinnu við öfluga stjórn vil ég gjarnan leggja sérstaka áherslu á að fjölga sjálfboðaliðum og styðja við þau sem þeim mikilvægu og fjölbreyttu störfum sinna.“ Þá vill hún einnig reyna að tryggja að starf Rauða krossins sé öflugt um allt land. Á sama tíma segir hún mikilvægt að sinna hjálparstarfi og alþjóðastarfi á viðsjárverðum tímum. „Rauði krossinn þarf að halda áfram að vera ávallt til staðar, þar sem þörfin er mest.“
UMMÆLI