KA/Þór heldur áfram að vinna í Olís-deild kvenna í handbolta. Í dag sóttu þær Stjörnuna heim í Garðabæ og unnu frábæran 26-27 útisigur.
Ásdís Guðmundsdóttir og Rut Jónsdóttir voru markahæstar hjá KA/Þór í leiknum, báðar með sex mörk
Fyrr í dag hafði Fram unnið Val á heimavelli og eru nú Framarar og KA/Þór með 14 stig í efstu tveimur sætum deildarinnar. Það eru fimm umferðir eftir af deildinni og stefnir í svakalega toppbaráttu.
UMMÆLI