Skemmdarverk unnin á götuskápum Norðurorku á Akureyri

Skemmdarverk unnin á götuskápum Norðurorku á Akureyri

Á annað hundrað götuskápar á Akureyri urðu fyrir skemmdum árið 2020. Þetta kemur fram á vef Norðurorku en þar segir að götuskápar séu mikilvægur hluti af dreifikerfi rafmagns.

„Þeir eru yfir þúsund talsins og á þeim eru snjóstangir sem sýna staðsetningu í miklum snjó, m.a. til viðvörunar fyrir snjóruðningstæki. Á ári hverju verða einhverjir götuskápar fyrir tjóni vegna ákeyrslu. Í einhverjum tilfellum eru tjónin minniháttar þannig að skápurinn einungis skekkist lítillega en í öðrum tilfellum er tjónið meira og afleiðingarnar geta orðið alvarlegar. Fyrir utan rafmagnsleysi sem oft fylgir tjóni á götuskáp, þá geta  götuskáparnir breyst í slysagildru  og orðið hættulegir þeim sem þá snerta,“ segir á vef Norðurorku.

„Því miður virðast einhverjir gera sér það að leik að brjóta snjóstangir á götuskápum en á árinu 2020 þurfti að endurnýja á annað hundrað stanga sem höfðu verið brotnar af götuskápum víða um bæinn. Við biðjum íbúa á Akureyri að hjálpast að við að koma í veg fyrir skemmdaverk sem þessi og forða þannig tjóni og hugsanlega slysi.“

Sambíó

UMMÆLI