Skugga Sveinn frumsýndur 11. febrúar

Skugga Sveinn frumsýndur 11. febrúar

Leikfélag Akureyrar frumsýnir Skugga Svein í Samkomuhúsinu föstudaginn 11. febrúar. Miðasala er í fullum gangi á mak.is. Frumsýningu hefur verið frestað þar til nú vegna samkomutakmarkanna.

Skugga Sveinn verður sýndur í nýrri og ferskri útgáfu. Í tilkynningu segir að Skugga Sveinn sé bráðskemmtilegt verk um einn þekktasta útlaga Íslands og baráttu hans við laganna verði.

„Lárensíus sýslumaður á þann draum heitastan að klófesta útilegumanninn Skugga Svein og lið hans enda Skugga Sveinn stórglæpamaður, þjófur og morðingi. En heldur vandast málið þegar dóttir Lárensíusar verður ástfangin af einum útilegumannanna og gerir hvað hún getur til að frelsa hann frá fangelsun og dauða. Hefst þá spennandi atburðarrás og barátta á milli ástar og haturs, réttlætis og ranglætis.“

Skugga Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var eitt þekktasta og vinsælasta leikverk á Íslandi um áratuga skeið og litríkar persónur þess, Grasa Gudda, Gvendur smali og Ketill skrækur hafa lifað með þjóðinni og tekið sér bólfestu í hjarta hennar.

Jón Gnarr leikur Skugga Svein. Í öðrum hlutverkum eru Björgvin Franz Gíslason, Sunna Borg, María Pálsdóttir, Árni Beinteinn Árnason, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Vala Fannell og Vilhjálmur B Bragason. 

Leikstjóri er Marta Nordal. Búningar eru í höndum Björg Mörtu Gunnarsdóttur. Tónsmíði og tónlistarútsetningar eru í höndum Sævars Helga Jóhannssonar, söngtextar eru eftir Vilhjálm B. Bragason, ljósahönnuður er Ólafur Ágúst Stefánsson, hljóðhönnuður er Gunnar Sigurbjörnsson. 

Miðasala fer fram á mak.is

Sambíó

UMMÆLI