Skugga Sveinn – málstofa á Sigurhæðum

Skugga Sveinn – málstofa á Sigurhæðum

Leikfélag Akureyrar frumsýnir Skugga Svein eftir Matthías Jochumsson 11. febrúar næstkomandi. Af því tilefni býður Leikfélag Akureyrar, Flóra menningarhús og Símenntun Háskólans á Akureyri til málstofu á Sigurhæðum fimmtudaginn 17. febrúar kl. 17-18:30.

Þar verða umræður og umfjöllun um verkið og þjóðskáldið en 100 ár voru árið 2020 frá andláti Matthíasar.

Dagskrá:

·      Kristín Þóra Kjartansdóttir – húsið Sigurhæðir, listamaðurinn Matthías og fjölskylda.

·      Jón Gnarr – sjálfur Skugga Sveinn, útilegumennirnir í verkinu með hliðsjón af hugtakinu útilokunarmenning (cancel culture) nútímans.

·      Björgvin Franz, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Árni Beinteinn – tónlist.

·      Marta Nordal leikhússtjóri og leikstjóri verksins – umræður.

Skráning á málstofuna er á simenntunha.is. Enginn aðgangseyrir verður á málstofuna en það er takmarkað sætapláss.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó