Skyggna stúlkan og dularlæknirinn

Skyggna stúlkan og dularlæknirinn

Margrét frá Öxnafelli fæddist árið 1908. Margrét hafði mikla skyggnigáfu og gat bæði séð inn í framtíðina sem og liðna atburði. Daglega átti hún í samskiptum við framliðna, sá álfa og huldufók og gat farið sálförum og þannig ferðast um heiminn utan líkamans.

Þuríður, móðir Margrétar veiktist alvarlega þegar hún var 10 ára. Eitt sinn í veikindum móðurinnar, þegar hún bað til æðri máttarvalda, birtist henni maður að nafni Friðrik. Hann var dularlæknir. Þuríður náði fullri heilsu en skjótur bati hennar vakti athygli sveitunganna í Saurbæjarhreppi. Sagan um hæfileika Margrétar og tengsl hennar við andaheiminn náði fljótlega eyrum almennings. Skyggna stúlkan frá Öxnafelli var nú á allra vörum. Bataferli Þuríðar markaði upphaf samstarfs Margrétar og Friðriks sem átti eftir að vara í 70 ár.

Árið 1960 kom út bókin Skyggna konan á vegum bókaútgáfunnar Fróða. Í bókinni eru birtar lækningasögur auk þess sem Margrét segir sjálf frá. Dagblaðið Tíminn birti kafla úr bókinni í nóvember 1960 þar sem segir frá samskiptum Margrétar við Friðrik. Sagnalist rifjar upp merkilegt samstarf tveggja heima um sjö áratuga skeið með því að skyggnast inn í samantekt Tímans.

Skyggna stúlkan Margrét frá Öxnafelli lést árið 1989.

„Þegar ég var um 10 ára að aldri, varð ég Friðriks fyrst vör. Ég sá hann með huldu fólki uppi hjá Svörtuklettum. Þá spurði ég hann, hvort hann væri huldumaður. Sagði hann, að ég mætti kalla sig það.

Ég álít, að Friðrik hafi sagt þetta, til þess að ég yrði síður hrædd við sig. En ég hafði áður kynni af huldufólkinu og bar traust til þess. En nú veit ég, að Friðrik er mennskur, framliðinn maður, en enginn huldumaður. Hann er kærleiksrík vera, sem vill hjálpa mönnum og lina þrautir þeirra.

Um þetta leyti var móðir mín mikið veik. Þá var ég orðin kunnug Friðriki, og spurði hann eitt sinn, hvort hann gæti hjálpað móður minni. Hann tók því vel. En ég varð mjög undrandi, er ég sá hann birtast í hvítum slopp eins og læknar nota. Áður vissi ég ekki, að hann væri læknir. En móður minni brá þegar til bata, svo að hún komst á fætur skömmu síðar.

Ég sagði henni frá þessu. Og báðar vorum við sannfærðar um, að Friðrik hefði hjálpað henni. Þetta barst til eyrna heimilisfólks og á næstu bæi. Það var upphafið að dularlækningum Friðriks.

Einn af merkustu atburðum, sem fyrir mig hafa komið gerðist kvöld eitt í Öxnafelli. Rigning hafði verið um daginn, en ég gekk út um kvöldið. Ég gekk upp fyrir bæinn og sá regnbogann í litskrúði sínu yfir sveitinni. Mér hafði verið sagt, að menn gætu óskað sér einhvers, ef þeir kæmust undir enda regnbogans.

Kom mér nú þetta í hug. Féll ég þá í einhverja leiðslu þar sem ég sat á þúfu og sá fagurt, dásamlegt lithaf allt í kringum mig. Fannst mér ég vera komin undir enda regnbogans og eiga óskastund. Í þessu einkennilega hrifningarástandi óskaði ég þess af allri sálu minni, að mér mætti veitast það að geta hjálpað þeim, sem þjást og linað þrautir þeirra. Óskinni fylgdi mikill fögnuður og hrifning. Enn man ég eftir þúfunni í túninu, þar sem ég sat, þegar þetta gerðist. Þessi stund er mér ógleymanleg.

Þetta sama kvöld byrjuðu lækningar Friðriks fyrir alvöru. Þá um kvöldið kom Jóhannes Kristjánsson, aldraður maður, með mörg lækningabréf austan frá Húsavík. Voru það fyrstu lækningabeiðnir lengra að. En áður hafði ég verið beðin um hjálp frá Friðriki handa sjúku fólki úr nálægum sveitum.

Og nú hófst annasamt tímabil í lífi mínu. Hjálparbeiðnir bárust víða að með ferðamönnum, bréfum og símskeytum. Þetta gerðist árið 1924 og þá var ég 16 ára. Mest fékk ég 200 bréf í einu. Annars skiptu þessi bréf þúsundum, og var til af þeim full kista í Öxnafelli, en þau glötuðust í húsbruna síðar. Ekki gat ég svarað nema fáum bréfum af þessum fjölda, en las þau öll og kom efni þeirra á framfæri við Friðrik. Ekki veit ég um árangur nema af nokkrum hluta af hjálparbeiðnunum. Við og við fékk ég þó þakkarbréf fyrir það, að lækningar Friðriks hefðu borið árangur, og hinir ólíklegustu sjúkdómar batnað.

Þegar ég var beðin fyrir sjúkling, birtist Friðrik venjulega. Mér finnst samband mitt við hann mjög náið. Ég þarf ekki að skrifa upp nöfnin. Hann týnir aldrei neinu nafni og sinnir hjálparbeiðnunum. Ég get hugsað um þetta við heimilisstörfin og þarf ekki nauðsynlega að hafa stund í einrúmi, meðan lækningin fer fram.

En þegar fólk kemur til mín og biður mig fyrir sjúklinga, þá syfjar mig oft mikið og dregur úr mér mátt. Vera má, að þá sé tekin einhver orka frá mér til lækninganna. Oft heyri ég þá raddir, sem segja, að þessum sjúklingi muni batna. Bregzt það þá ekki. En sé alger þögn, bendir það til, að sjúkdómurinn sé svo alvarlegur, að hann muni leiða til dauða. Fæ ég á þennan hátt hugboð um árangur af lækningunum.

Aldrei hefur Friðrik sagt mér, hver hann var, meðan hann lifði hér í jarðneskum líkama. En mér finnst þó, að hann hafi verið læknir. Að útliti er hann hár og dökkhærður, skiptir hárinu í vinstri vanga og greiðir það aftur. Hann hefur hátt og breitt enni og dökkgrá augu. Þau eru sérstaklega falleg, mild, en þó einbeitt, Framkoman bendir til skapstillingar. Hann er oftast í gráum fötum, en stundum í hvítum slopp. Friðrik sá, sem Guðrún frá Berjanesi hefur samband við, er annar maður.

Þegar ég var beðin fyrir sjúkling, hugsa ég til Friðriks. Þá heyri ég fljótt svör hans og þekki röddina. Það er eins og símasamband sé á milli okkar.

Upprifjun Sagnalistar á frásögn Margrétar frá Öxnafelli má lesa í heild sinni á Sagnalist.is.

UMMÆLI

Sambíó