Smíði nýrrar kirkju í Grímsey gengur velMynd: Hilmar Páll Jóhannesson

Smíði nýrrar kirkju í Grímsey gengur vel

Hilmar Páll Jóhannesson frá Loftkastalanum sem sér um smíði nýrrar kirkju í Grímsey segir að verkið gangi vel þrátt fyrir að slæmt veður í lok júlí hafi tafið framkvæmdir. Skóflustunga að nýrri Miðgarðakirkju í Grímsey var tekin í byrjun maí á þessu ári og í sumar hefur verið unnið ötullega að uppbyggingunni. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Starfsmenn á vegum Loftkastalans mættu aftur út í Grímsey um miðjan ágúst og stefna að því að loka kirkjunni fyrir lok september, gera hana fokhelda fyrir veturinn.

Söfnun fyrir byggingu kirkjunnar gengur mjög vel. Áætlaður heildarkostnaður við fullfrágengna kirkju er um 120 milljónir króna. Í vor þegar fyrsta skóflustungan var tekin vantaði um 50 milljónir upp í kostnaðaráætlun og var þá sett af stað söfnunarátak sem hægt er að fylgjast með á heimasíðu Grímseyjar www.grimsey.is/kirkja.

Ennþá vantar tæplega 30 milljónir svo hægt sé að ljúka við kirkjusmíðina. Vonir standa til að sú fjárhæð safnist í vetur og hægt verði að vígja nýja Miðgarðakirkju sumarið 2023 en hún mun einnig þjóna hlutverki tónlistar- og menningarhúss.

Á vef Akureyrarbæjar má sjá myndir frá framkvæmdunum.

Söfnunarreikningur Miðgarðakirkju:
Kennitala: 460269-2539
Reikningsnúmer: 565-04-250731

UMMÆLI