Smit í Síðuskóla á Akureyri

Smit í Síðuskóla á Akureyri

Starfsmaður í frístund í Síðuskóla hefur greinst með Covid-19. Viðkomandi fékk einkenni um liðna helgi og var smitið staðfest í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Frístund í Síðuskóla verður lokuð út vikuna og þá verða starfsmenn frístundar sem unnu með viðkomandi á fimmtudag og föstudag í síðustu viku og börn sem voru í frístund þá daga hafa verið send heim í úrvinnslusóttkví.

Starfsfólk, nemendur og foreldrar þeirra eru beðnir að fylgjast vel með því hvort fram komi einkenni sjúkdómsins og er bent á að hafa samband við heilsugæsluna ef grunur vaknar um smit. Enn er óupplýst hver uppruni smitsins er en smitrakning er hafin.

43 virk smit eru nú á Norðurlandi eystra og 70 einstaklingar eru í sóttkví.

UMMÆLI