Smitum fjölgar á Norðurlandi eystra

Smitum fjölgar á Norðurlandi eystra

Níu virk smit eru nú á Norðurlandi eystra samkvæmt nýjustu tölum covid.is. Fjögur virk smit hafa því bæst við síðan á föstudagskvöld.

Töluverð fjölgun hefur einnig verið á einstaklingum í sóttkví á svæðinu en 63 einstaklingar eru nú í sóttkví samanborið við 28 á föstudagskvöld.

Alls greind­ust 60 ný kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands í gær, þar af voru 36 í sótt­kví og 24 utan sótt­kví­ar. 1017 einstaklingar eru í einangrun vegna smits á Íslandi í dag.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó