Prenthaus

Söfnun fyrir nýjum snjótroðara lokið – Um 42 milljónir söfnuðustGamli rauður, stjórn og varastjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga 2021-2022

Söfnun fyrir nýjum snjótroðara lokið – Um 42 milljónir söfnuðust

Í gær, 22. febrúar, lauk söfnun söfnun Skógræktarfélags Eyfirðinga fyrir nýjum snjótroðara formlega. Í heildina söfnuðust nákvæmlega 41 milljón og 609 þúsund krónur en til viðbótar við það hefur Skógræktarfélagið vilyrði fyrir smurolíu, eldsneyti og flutningi á tækinu til landins.

Söfnunin gekk vonum framar en þar sem að nýi snjótroðarinn er aðeins breiðari og hærri en sá gamli og er of stór fyrir núverandi vélageymslu félagsins verður það sem safnaðist umfram verðmiða nýja snjótroðarans nýtt upp í kostnað við að reisa skemmu.

„Á degi sem þessum er rétt að staldra við og gleðjast. Við í stjórn og starfsmenn erum ánægð með áfangann og full þakklætis til allra sem hafa lagst á sveif með okkur. Það er augljóst að við þökkum öllum sem hafa lagt inn á söfnunarreikninginn okkar en við erum líka þakklát öllum sem hafa komið að því að skapa þá útivistarparadís sem Kjarnaskógur er. Fyrrverandi stjórnarfólki, starfsmönnum og félögum síðastliðin 70 ár sem hafa ræktað skóg og lagt grunn að og byggt upp flott útivistarsvæði. Kjarnaskógur er uppspretta og orkustöð þar sem fólk getur hvílst, hlaðið batteríin, fengið útrás, hlustað á fuglasöng og fundið ilminn af skóginum. Skógurinn gefur og nú hafa skógarvinir gefið tilbaka,“ segir í tilkynningu á vef Kjarnaskógs.

Sambíó

UMMÆLI