Prenthaus

Sóley leiðir lista Vg á Akureyri

Í gærkvöldi var listi Vinstihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor samþykktur. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi leiðir listann sem má sjá í heild sinni hér að neðan.
Sóley segist gríðarlega ánægð með listann sem inniheldur reynslumikið fólk í bland við nýja þátttakendur.
„Sérstaklega er það ánægjulegt hversu margar ungar konur gáfu kost á sér og sóttust eftir sætum ofarlega á listann, það segir mér að kvennabyltingar undanfarinna mánaða og ára hvetji konur til að láta til skarar skríða. Karlar á öllum aldri og með fjölbreytta reynslu koma einnig sterkir inn og í raun alveg frábært, og þakkar vert, hversu mikið af hæfileikaríku fólki er tilbúið til að láta til sín taka í pólitík,“ segir Sóley.
Listi Vg fyrir sveitarstjórnarkosningar:
1. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi
2. Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, söngkona og starfsmaður bílaleigu
3. Edward H. Huijbens, prófessor við HA
4. Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur hjá Þjóðskrá
5. Finnur Dúa, grafískur hönnuður
6. Þuríður Sólveig Árnadóttir, sjúkraþjálfari
7. Valur Sæmundsson, kennari og tölvunarfræðingur
8. Ásrún Ýr Gestsdóttir, starfar við umönnun
9. Hermann Arason, framkvæmdastjóri
10. Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, sérfræðingur í félagsmálum barna
11. Einar Gauti Helgason, matreiðslunemi
12. Anna María Hjálmarsdóttir, ráðgjafi
13. Ólafur Kjartansson, vélvirki
14. Kristín Þóra Kjartansdóttir, félagsfræðingur og framkvæmdastýra
15. Wolfgang Frosti Sahr, framhaldsskólakennari
16. Arnfríður Kjartansdóttir, sálfræðingur
17. Sigmundur Sigfússon, geðlæknir
18. Hildur Friðriksdóttir, bókavörður og verkefnastjóri í VMA
19. Samúel Lúkas Rademaker, sjálfstætt starfandi
20. Dýrleif Skjóldal, leikskólakennari og sundþjálfari
21. Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistarmaður
22. Kristín Sigfúsdóttir, fv. Bæjarfulltrúi

UMMÆLI

Sambíó