Sóttkví aflétt á Aspar- og Beykihlíð

Sóttkví aflétt á Aspar- og Beykihlíð

Sóttkví hefur verið aflétt á Aspar- og Beykihlíð eftir að öll sýni sem tekin voru í dag, bæði hjá íbúum og starfsfólki reyndust neikvæð.

Íbúar á Asparhlíð fóru í sóttkví vegna smits sem greindist hjá starfsmanni 24.október. Lokað var fyrir allar heimsóknir á Asparhlíð þar til í dag og til þess að gæta ítrustu varúðar var einnig lokað fyrir heimsóknir á Beykihlíð.

Heimsóknir eru nú leyfðar á ný en eftirfarandi reglur eru enn í gildi:

  • Maskaskylda er á heimsóknargesti
  • Mælst er til að draga úr heimsóknum barna vegna fjölda smita í þeim aldurshópi
  • Heimsóknaraðilar sýni varkárni í sóttvörnum og fara eftir þeim sóttvarnarreglum sem gilda í samfélaginu á hverjum tíma
  • Heimilt er að koma með dýr í heimsókn
  • Aðstandendum er heimilt að dvelja í sameiginlegum rýmum
  • Ekki koma í heimsókn með flensulík einkenni
  • Aðstandendum er óheimilt að koma í heimsókn á ÖA fyrr en þeir hafa fengið neikvæða niðurstöðu úr PCR prófi við komuna til landsins. Mælst er til þess að bíða í 2-3 daga eftir heimkomuna með að koma í heimsókn
  • Aðstandendum sem hafa umgengist einstaklinga með COVID-19 smit, er óheimilt að koma í heimsókn á HH
  • Aðstandendum sem hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 7 dagar frá útskrift, er óheimilt að koma í heimsókn á HH
  • Áfram er mælst til þess að aðstandendur hafi smitrakningar-app Embættis landlæknis í símum sínum
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó