Staða skimana fyrir krabbameinum á Akureyri

Staða skimana fyrir krabbameinum á Akureyri

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis vekur athygli á að nú er hlé á skimunum fyrir krabbameini vegna Covid-19 á Akureyri. Í frétt á vef HSN kemur fram að: 

„Unnið er að því að flytja leghálsskimanir á Heilsugæslustöðina á Akureyri en vegna lokana vegna Covid-19 og flutnings frumurannsókna frá Krabbameinsfélagi Íslands þá mun það dragast og verður líklega ekki fyrr en um áramót. Þetta verður þó endurskoðað eftir miðjan nóvember ef smitum fækkar nægilega mikið á svæðinu.“

Á vef Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis eru konur beðnar um að fylgjast vel með:  

  • Send verður út tilkynning á heimasíðu HSN á Akureyri þegar bókanir hefjast í leghálsskimun. Konur sem eru í þéttara eftirliti vegna frumubreytinga munu verða í forgangi og geta látið setja sig á biðlista núna en geta einnig leitað eftir ráðleggingum hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands 
  • Send verður út tilkynning á heimasíðu SAk þegar skimun brjóstakrabbameina hefst aftur á SAk, þess ber þó að geta að áfram er opið fyrir brjóstarannsóknir á SAk séu einkenni til staðar. 
  • Við hvetjum konur sem finna til einkenna að leita til heimilislæknis 
  • Konur geta skoðað skimunarsögu sína inn á vefnum island.is
  • Við hvetjum konur til þess að vera duglegar að skoða sjálfar brjóstin, sjá kennslumyndband hér. 

„Við minnum einnig á að þær konur sem hafa greinst með krabbamein geta leitað ráðgjafar og stuðnings hjá okkur með því að panta tíma hjá ráðgjafa í síma 461-1470 eða með því að senda póst á katrin@krabb.is.

Það skiptir máli að konur eigi greiðan aðgang að skimunum heimabyggð og eigum við í góðu samtali við Leitarstöðina, Sjúkrahúsið á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Norðurlands um framhald og framtíð skimana hér á Akureyri. Við munum setja inn tilkynningar um þær breytingar sem verða um leið og þær berast. 

Með bestu kveðju, starfsfólk Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis,“ segir á vef Krabbameinsfélagsins.

UMMÆLI

Sambíó