Staðan á bólusetningum á Norðurlandi – 2300 skammtar til HSN á morgun

Staðan á bólusetningum á Norðurlandi – 2300 skammtar til HSN á morgun

Á morgun, 7. apríl, fær Heilbrigðisstofnun Norðurlands 1100 skammta af AstraZeneca bóluefninu og 1200 skammta af Pfizer bóluefninu.

AstraZeneca bóluefnið verður nýtt til að klára bólusetja íbúa fædda 1951 og eldri. Pfizer bóluefnið verður nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu bóluefni 16-19. mars, fyrri bólusetningu hjá heilbrigðisstarfsmönnum sem vinna utan stofnana við heilbrigðisstörf og til að hefja bólusetningu hjá íbúum sem með undirliggjandi sjúkdóma og fæddir 1952-56.

„Þetta er stór hópur og náum við ekki að klára hann en höldum áfram eftir því sem bóluefni berst,“ segir í tilkynningu HSN.

Á Akureyri fer bólusetning þeirra sem ekki hafa hafið bólusetningu í árgöngum 1951 og eldri fram miðvikudaginn 7. apríl. Fólk sem fætt er í þessum árgöngum og hefur ekki farsíma og fær því ekki boð með sms er beðið um að mæta í bólusetningu á slökkvistöðina 7. apríl milli kl. 13-15.

Á Akureyri fer seinni bólusetning þeirra sem fengu fyrri bólusetninguna með Pfizer bóluefninu 18. mars fram fimmtudaginn 8. apríl. Þeir sem hafa ekki farsíma og fá því ekki boð með sms eru beðnir um að mæta í seinni bólusetninguna á slökkvistöðina 8. apríl milli kl 9-11. Þeir sem eru að fá fyrri bólusetninguna með Pfizer verða einnig bólusettir 8. apríl.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi mun fólk í þessum árgöngum og hópum fá boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó