Prenthaus

Staðfest smit á Norðurlandi eystra nú orðin 11Akureyri úr lofti. Mynd: Kaffið.is/Jónatan.

Staðfest smit á Norðurlandi eystra nú orðin 11

11 smit eru nú staðfest á Norðurlandi eystra samkvæmt nýjustu tölum frá Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Nýjustu tölur voru birtar kl. 13 í dag inn á covid.is.

Smitum hefur fjölgað um þrjá einstaklinga frá því gær þegar 8 voru smitaðir. Í fyrradag voru 5 smitaðir og því fjölgað um þrjá núna tvísinnis. Einstaklingum í sóttkví hefur fjölgað úr 356 í 369 frá því í gær.

Á landinu öllu eru smit orðin 737 og 9013 einstaklingar í sóttkví. 681 einstaklingur eru í einangrun og 11 á sjúkrahúsi. Þá hafa 2.096 lokið sóttkví og 56 einstaklingar hafa náð bata.

Ef þú finnur fyrir einkennum eða óttast smit hringdu þá í 1700. Veikir einstaklingar eru sérstaklega beðnir um að mæta ekki á bráðamóttöku sjúkrahúsa eða á heilsugæslustöðvar nema að fengnum ráðleggingum í síma. Upplýsingar um veiruna og viðbrögð á vef Embættis Landlæknis.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó