Staðfestu grun um fíkniefnaframleiðslu

Staðfestu grun um fíkniefnaframleiðslu

Um klukkan 10 í gærmorgun, 18. júní, var farið í samræmdar lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum á landinu þar sem framkvæmdar voru húsleitir að undangengnum úrskurðum frá Héraðsdómi Norðurlands eystra. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra, þar segir einnig:

„Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur um nokkurt skeið unnið að rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu. Með aðgerðunum í gær var unnt að staðfesta þessar grunsemdir og er rannsókn á frumstigi. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir sakborningum í dag. Í aðgerðunum var lögreglan á Norðurlandi eystra í samstarfi við lögregluna á Vesturlandi, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra. Málið er enn á viðkvæmu stigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“

UMMÆLI