Prenthaus

Starf Fjölsmiðjunnar tryggt áfram

Frá undirritun samningsins. Standandi eru Erlingur Kristjánsson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri. Mynd: Akureyri.is

Í gær var undirritaður samstarfssamningur Akureyrarbæjar og Fjölsmiðjunnar til næstu þriggja ára. Markmið samningsins er að efla Fjölsmiðjuna í hlutverki sínu sem starfsþjálfunarstaður fyrir ungt fólk 16–24 ára. Ennfremur að auka tengsl og samvinnu Fjölsmiðjunnar og annarra innan bæjarfélagsins sem vinna með ungu fólki.

Fjölsmiðjan veitir ungu atvinnulausu fólki vinnu með það að markmiði að hver einstaklingur njóti sín og verði færari í að takast á við kröfur umhverfisins ýmist á vinnumarkaði eða í námi. Þegar ungmennin eru tilbúin, eru þau studd í vinnu eða skóla. Í Fjölsmiðjunni er rekið mötuneyti, bílaþvottastöð, búð með notuð húsgögn o.fl. og móttaka á endurvinnslu á tölvum og öðrum raftækjum.

Samningurinn kveður á um að haldnir verði reglulegir samstarfsfundir á milli starfsmanna Fjölsmiðjunnar og félagsþjónustu Akureyrarbæjar þar sem fjallað verður um inntöku nýrra ungmenna í Fjölsmiðjuna og um framgang hvers og eins á vinnustaðnum. Þegar ungmenni sem Akureyrarbær hefur vísað í Fjölsmiðjuna er undir 18 ára aldri skal fulltrúi félagsþjónustunnar/barnaverndar sitja í teymi um barnið þar sem staða þess er metin reglulega og ákvarðanir teknar um framhaldið.

Akureyrarbær greiðir Fjölsmiðjunni árlega 4 milljónir króna til ofangreindra verkefna á samningstímanum. Fjárveitingar eru með fyrirvara um framlög úr bæjarsjóði til velferðarráðs við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri sagði við undirritunina: „Það fer ekki framhjá neinum að hér er unnið gríðarlega gott og mikilvægt starf. Þess vegna er það mér sönn ánægja að undirrita þennan samstarfssamning með það fyrir augum að tryggja áfram og festa enn frekar í sessi það góða starf sem Fjölsmiðjan vinnur samfélaginu til heilla.“

Sambíó

UMMÆLI