Stefnt að opnun í Hlíðarfjalli 17. desember

Stefnt að opnun í Hlíðarfjalli 17. desember

Starfsfólk Hlíðarfjalls er byrjað að undirbúa opnun skíðasvæðisins og stefna að því að opna 17. desember.

Óvissa ríkir um hvernig ástandið verður vegna Covid-19 faraldursins þegar hægt verður að opna svæðið en Samtök skíðasvæða á Íslandi hafa óskað eftir upplýsingum um tilhögun á starfsemi skíðasvæða næstu mánuði. Vonast er til þess að þau mál skýrist á næstu vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Nýja stólalyftan að verða tilbúin til notkunar

Vinna við nýju stólalyftuna er nú á allra síðustu metrunum og á aðeins eftir að gera ákveðnar öryggisprófanir á öllum búnaði í samráði við framleiðanda. „Nýja lyftan stækkar skíðasvæðið umtalsvert en hún nær upp í mikla hæð og svæði sem er í töluverðum bratta. Vegna þessa þarf að hafa góðan vara á vegna snjóflóðahættu sem getur skapast við viss skilyrði. Nú er unnið að því að setja upp svokallaðan sprengiturn sem verður notaður af eftirlitsmönnum til að koma af stað flóðum eftir þörfum og áður en þau skapa hættu. Þrír starfsmenn hafa tekið sérstök próf á þessu sviði og öðlast tilskilin réttindi til að grípa til réttra ráðstafana ef þurfa þykir,“ segir í tilkynningunni.

Forsala á vetrarkortum stendur yfir þar til skíðasvæðið opnar og er hægt að kaupa þau á heimasíðu Hlíðarfjalls.

UMMÆLI

Sambíó