Stefnt að því að fá 65 rafhlaupahjól til Akureyrar í aprílLjósmynd af Facebook-síðu Hopp.

Stefnt að því að fá 65 rafhlaupahjól til Akureyrar í apríl

Akureyrarbær hefur gert þjónustusamning við fyrirtækið Hopp um stöðvalausa rafhlaupahjóla-leigu á Akureyri. Stefnt er að því að hefja starfsemi með 65 rafhlaupahjólum í apríl. Þetta kemur fram á vef bæjarins í dag.

„Markmið Akureyrarbæjar með þessu er að styrkja net almenningssamgangna og auðvelda íbúum og gestum að komast ferða sinna innanbæjar með umhverfisvænum hætti. Aðrar aðgerðir sveitarfélagsins í þessa veru, sem unnið er að um þessar mundir, eru til dæmis endurskoðun á leiðaneti Strætisvagna Akureyrar og uppbygging á aðlaðandi og skilvirku stígakerfi samkvæmt nýju skipulagi,“ segir í tilkynningu.

„Rafskútur, öðru nafni rafhlaupahjól, hafa rutt sér hratt til rúms á höfuðborgarsvæðinu og hafa nokkrar hjólaleigur hafið þar starfsemi að undanförnu. Þetta er hluti af alþjóðlegri þróun í þéttbýli þar sem sífellt fleiri kjósa að deila samgöngutækjum og aukin áhersla er lögð á örflæði, samgöngur þar sem lítil rafvædd farartæki eru notuð til að komast stuttar vegalengdir á fljótlegan og einfaldan hátt.“

Á vef bæjarins segir að fyrirkomulag rafskútuleigunnar á Akureyri verði sambærilegt og þekkist í Reykjavík. Fólk noti smáforrit í síma (app) til að finna næsta lausa hjól, aflæsa því og leggja af stað. Fólk skilar hjólunum svo á svæðum þar sem það er heimilt.

Fyrir þjónustuna greiðir notandi upphafsgjald og mínútugjald samkvæmt verðskrá fyrirtækisins. Nánari upplýsingar um þjónustuna og fyrirkomulagið á Akureyri verða birtar þegar nær dregur, en eins og áður sagði er stefnt að því að fyrstu hjólin verði komin í umferð fyrir lok apríl.

Forsvarsmenn fyrirtækisins óskuðu eftir viðræðum við bæinn um opnun rafskútuleigunnar sem skipulagsráð samþykkti í október síðastliðnum. Með samningnum, sem nú hefur verið undirritaður, heimilar sveitarfélagið þessa starfsemi og samþykkir að vinna að því ásamt fyrirtækinu að áhrif þjónustunnar verði sem jákvæðust.

Á vef fyrirtækisins Hopp kemur fram að þjónustan sé einungis í boði fyrir 18 ára og eldri. Aðeins er hægt að leigja eitt hjól í einu í gegnum hvern aðgang.

Sambíó

UMMÆLI