Steinþór Freyr framlengir við KAMynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Steinþór Freyr framlengir við KA

Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur framlengt samning sinn við KA og leikur því með liðinu aftur næsta sumar í Pepsi deildinni.

Steinþór sem er 33 ára hefur spilað síðustu tvö ár með KA og leikið 32 leiki fyrir liðið og gert eitt mark.

„Það er alltaf góð tilfinning að vera búinn að klára samningsmál og mér hefur liðið mjög vel á Akureyri. Tíminn hjá KA hefur verið smá erfiður vegna þó nokkurra meiðsla en vonandi er sá tími búinn og ég get byrjað að einbeita mér að spila fótbolta.

Mér líst mjög vel á Óla Stefán sem nýjan þjálfara og verður gaman að sjá hvaða áherslur hann mun koma með inn í klúbbinn. Standið á mér sjálfum er mjög gott og í raun frekar pirrandi að það komi svona í lok móts en ég ætla að byggja ofan á þetta og ná því inn í næsta tímabil. Ég er allavega byrjaður í TFW upp í KA til þess að viðhalda formi, styrk og annað!“ sagði Steinþór í spjalli við heimasíðu KA.

 

UMMÆLI