Sterkasta kona Íslands á Akureyri

Sterkasta kona Íslands á Akureyri

Keppnin Sterkasta kona Íslands fór fram á Akureyri um helgina. Ingibjörg Óladóttir og Sigfús Fossdal voru mótshaldarar í ár. Sigfús var einnig mótstjóri, þulur og kynnir. Ingibjörg var einnig dómari á mótinu.

Ellen Lind Ísaksdóttir gerði sér lítið fyrir og vann titilinn þriðja árið í röð. Aðeins Bryndís Óladóttir hefur unnið þrjá titla í röð en hún vann keppnina á árunum 1996 til 1998. Bryndís vann svo tvo titla í viðbót eftir aldamót en engin hefur unnið fleiri titla.

Ellen þurfti að hafa talsvert fyrir titlinum í ár, en Ragnheiður Ósk Jónasdóttir sem vann árið 2018 og hefur tekið annað sæti á eftir Ellen þessi þrjú ár, vann fyrstu fjórar greinarnar af þeim sex sem keppt var í. Það er því óhætt að segja að keppnin hafi verið spennandi. Í réttstöðulyftunni sem var fyrsta grein, setti Ragnheiður Íslandsmet í réttstöðulyftu með öxul, þar sem hún lyfti 200 kg.

Í undir 82 kg flokki vann Lilja B Jóndóttir enn einn titilinn, en hún hefur samtals unnið léttari flokkinn sex sinnum. Lilja varð einnig þriðja í opna flokknum. Lilja hefur verið lengst að þeirra keppenda sem eru að keppa í dag og hefur bara orðið betri með árunum. Í öðru sæti varð Veiga Dís Hansdóttir, sem er jöfnun á árangri hennar frá því í fyrra, og þriðja sætið tók Lillý Ösp Sigurjónsdóttir á sínu öðru móti. Lilja var í hálfgerðum sérflokki í léttari flokknum í ár, en keppninum annað til fjórða sæti varð virkilega hörð og réðst ekki fyrr en seinasta grein var búin.

„Alls 10 keppendur mættu til leiks í ár, allt frá byrjendum upp í fyrrum sigurvegara. Mótið hefur verið að stækka og dafna, og er þetta annað árið sem mótið verður sýnt í sjónvarpi. Fleiri keppnir fyrir konur yfir árið hefur einnig haft jákvæð áhrif á uppbygginguna,“ segir Sigfús Fossdal, mótshaldari.


UMMÆLI

Sambíó