Stillt verður upp á lista Samfylkingarinnar á Akureyri – Hilda Jana vill leiða flokkinn áfram 

Stillt verður upp á lista Samfylkingarinnar á Akureyri – Hilda Jana vill leiða flokkinn áfram 

Á almennum félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gærkvöldi var samþykkt samhljóða að skipa uppstillingarnefnd sem fer með það hlutverk að stilla upp lista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Hilda Jana Gísladóttir tilkynnti á fundinum að hún vilji áfram leiða flokkinn á Akureyri. Í uppstillingarnefnd voru kjörin þau Unnar Jónsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Arnar Þór Jóhannesson. Uppstillingarnefnd mun leggja fram tillögu sína á almennum félagsfundi þann 24. febrúar næstkomandi.

Sjá einnig: Hilda Jana sú eina sem vill vera áfram oddviti  

Fundurinn var vel sóttur og greina mátti spennu og eftirvæntingu fyrir kosningunum í vor. Í almennum umræðum sem fram fóru í kjölfar ákvörðunar um uppstillingu listans kom fram mikil ánægja með störf bæjarfulltrúa og annarra kjörinna fulltrúa Samfylkingarinnar við krefjandi aðstæður á kjörtímabilinu sem senn rennur sitt skeið á enda.  

UMMÆLI

Sambíó