Prenthaus

Stóraukið samstarf Þjóðleikhússins og Leikfélags Akureyrar

Stóraukið samstarf Þjóðleikhússins og Leikfélags Akureyrar

Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri, og Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, skrifuðu í dag undir samkomulag um stóraukið samstarf menningarstofnananna tveggja. Samkomulagið kveður á um fjölgun gestasýninga, sameiginlegar uppsetningar og miðlun þekkingar á milli starfsfólks. Þetta kemur fram á vef Menningarfélags Akureyrar í dag.

Þar segir að Þjóðleikhúsið og Leikfélag Akureyrar ætli á næstu árum að stórauka samstarf á milli stofnananna með það að markmiði að efla leiklist í landinu, stuðla að auknu flæði á milli landshluta, auka verðmætasköpun beggja stofnana, gera sýningar hvors leikhúss aðgengilegar stærri áhorfendahópi, miðla þekkingu og skapa fjölbreytni.

Samkomulagið er fjórþætt. Leikhúsin munu sýna gestasýningar a.m.k. einu sinni á ári hvort hjá öðru. Í öðru lagi munu þau sameinast um að framleiða eina sýningu sem verður sett upp á báðum stöðum. Síðast en ekki síst munu verða aukin tækifæri fyrir starfsfólk húsanna til að auka samvinnu sín á milli og miðla þekkingu og lista- og tæknifólk mun í einhverjum tilfellum geta starfað við verkefni í báðum leikhúsum.

„Þjóðleikhúsið er leikhús allra landsmanna og við stefnum að því að fjölga leikferðum um landið. Samhliða viljum við auka enn samstarf við Leikfélag Akureyrar og auka sýningarhald á Akureyri. Það er trú okkar að þetta samkomulag muni verða til þess að efla leiklist í landinu öllu og við viljum gjarnan styðja við starfsemi leikhúss á Akureyri. Með þessu samkomulagi er opnað fyrir aukið samstarf, sýningarhald og þekkingarmiðlun. Það er líka tilhlökkunarefni að geta boðið höfuðborgarbúum upp á vönduðustu sýningarnar frá Akureyri. Þetta er mikið tilhlökkunarefni,“ sagði Magnús Geir á vef Mak.

Á leikárinu mun Þjóðleikhúsið sýna Upphaf eftir David Eldridge á Akureyri og stefnt er að sýningu á Vorið vaknar í uppsetningu LA á næsta ári. Þá munu leikhúsin vinna sameiginlega að uppsetningu á Krufning sjálfsmorðs eftir Alice Birch.

„Við á Akureyri erum afar spennt fyrir auknu samstarfi við Þjóðleikhúsið og sjáum í því mikil tækifæri bæði varðandi miðlun þekkingar og samvinnu og líka að þarna fáum við tækifæri til að stækka okkar markað og ná til fleiri áhorfenda. Samstarf þessara stofnanna eykur slagkraft og stuðlar að fjölbreytni,“ segir Marta Nordal.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó