Super Break flýgur áfram til Akureyrar næsta vetur

Super Break flýgur áfram til Akureyrar næsta vetur

Breska ferðaskrifstofan Super Break mun halda áfram að fljúga til Akureyrar næsta vetur. Breytingar verða gerðar á skipulaginu og er áætlað að fyrstu ferðirnar verði farnar í byrjun febrúar 2020 og að flogið verði hingað fram í apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

Chris Hagan, sem hefur yfirumsjón með verkefninu hjá Super Break, segir að 14 ferðir verði settar í sölu til að byrja með frá mikilvægustu héraðsflugvöllunum í Bretlandi. Vonir standa til þess að hægt verði að bæta fleiri ferðum við.

Alls voru 29 ferðir til Akureyrar í vetur á vegum Super Break og farþegarnir um 4.500 talsins.

UMMÆLI

Sambíó