Svavar Viðarsson gefur út plötu ári eftir alvarleg veikindi

Svavar Viðarsson gefur út plötu ári eftir alvarleg veikindi

Tónlistarmaðurinn Svavar Viðarsson hefur gefið út plötuna Enginn lengur veit. Svavar fékk blóðtappa í heila og greindist með hjartagalla fyrir um ári síðan og voru honum ekki gefnar miklar líkur á bata en hefur nú náð fullum bata og eltir nú ástríðu sína í tónlist og útivist.

„Ég tók það ekki í mál að ég myndi ekki lifa veikindin af eða festast í þessu ástandi. Ég leyfði mér ekki að hugsa út í það neikvæða sem gæti gerst heldur einblýndi ég á það jákvæða í lífinu og hvað ég hlakkaði til að gera þegar ég væri búinn að ná mér, sem var að taka upp og gefa út plötuna mína Engin lengur veit,“ segir Svavar.
                             
Platan hans Engin lengur veit er 7 laga, þýðingarmikil, falleg og djúp plata sem lagt var í blóð, svita og tár.
Öll lögin eru þægileg, grípandi og vel útsett og ættu því allir að finna eitthvað að tengja við á plötunni.

Hægt er að nálgast plötuna hér:
Enginn lengur veit – Platan

Upptökur fóru fram í desember 2021 – apríl 2022 hjá Nice Productions, apríl 2021 hjá Studio Pros og 2020 hjá Studio Leyni

Hljómsveitin Nostal sá um hljóðfæraleik að mestu en aukalega komu að verkefninu þau Rakel Pálsdóttir (söngur og raddir), Tómas Jónsson (píanó), Sigurður Bjarki Gunnarsson (selló), Matthías Stefánsson (fiðla/víóla) og Vignir S. Vigfússon (kassagítar).


UMMÆLI

Sambíó