Prenthaus

Taktu þátt í BarnamenningarhátíðSýning á verkum barna í Listasafninu á Akureyri árið 2021

Taktu þátt í Barnamenningarhátíð

Frestur til að sækja um styrki vegna verkefna og viðburða sem tengjast Barnamenningarhátíð á Akureyri 2022 rennur út 16. janúar nk. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og eru leik- og grunnskólakennarar sérstaklega hvattir til að sækja um styrki til verkefna á vegum skólanna.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á akureyri.is. Athugið að einungis er hægt að opna umsóknina með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Mikilvægt er að umsóknaraðilar kynni sér vel verklagsreglur um stuðning Akureyrarbæjar við viðburði á Barnamenningarhátíð á Akureyri sem er að finna HÉR.

Nánari upplýsingar um Barnamenningarhátíð á Akureyri 2022 á barnamenning.is.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó