Þjóðhátíðardagurinn á Akureyri með öðru sniði

Þjóðhátíðardagurinn á Akureyri með öðru sniði

Hátíðarhöld á Akureyri þjóðhátíðardaginn 17. júní verða með óhefðbundnu sniði að þessu sinni. Ekki verður safnast saman í Lystigarðinum eða miðbænum eins og verið hefur síðustu árin. Þess í stað verður sérstakur blómabíll á ferð um bæinn frá kl. 13 og kl. 15 hefst skemmtidagskrá fyrir yngri kynslóðina á flötinni austan við Minjasafnið. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Lúðrasveit Akureyrar þenur lúðra, skátarnir hefja fána hátt á loft og boðið verður upp á skemmtidagskrá fyrir ungu kynslóðina.

Hátíðarhald og viðburðir á sex stöðum í bænum sem sjá má á meðfylgjandi mynd.

1) Lögmannshlíð kl. 13.00
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri flytur ávarp. Heiðursvörður og fánahylling. Kvennakór Akureyrar flytur þjóðsönginn. Séra Sindri Geir Óskarsson fer með bænagjörð og blessun. Lúðrasveit Akureyrar spilar.

2) San Síró kl. 13.30
Leikhópurinn Lotta skemmtir krökkum á öllum aldri á grasflötinni austan Lundarskóla. Enginn aðgangseyrir.

3) Hlíð kl. 14.30
Kvennakór Akureyrar syngur. Ávarp fjallkonunnar sem er að þessu sinni Sigurlína Guðný Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur úr framvarðarlínu SAk í baráttunni gegn Covid-19. Lúðrasveit Akureyrar spilar. Afhending jafnréttisviðurkenninga Akureyrarbæjar.

4) Minjasafnsflötin kl. 15.00-16.00
Skátatívolí og hoppukastalar. Leikhópurinn Lotta bregður á leik. Ísbjörninn Barri skemmtir gestum. Skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Söfnin í Innbænum opin. Frítt inn á Minjasafnið, Iðnaðarsafnið, Leikfangasýninguna í Friðbjarnarhúsi og í Nonnahús.

5) Í gegnum linsuna – Lífríki Norðurslóða
Opnun ljósmyndasýningar við Hof kl. 16.00.

6) Sigling á Pollinum
Skipverjar á eikarbátnum Húna II bjóða upp á ókeypis siglingu um Pollinn kl. 16, 17 & 18.

Sambíó

UMMÆLI