Þjónustuskrifstofur VÍS á Húsavík og Akureyri sameinaðar

Þjónustuskrifstofur VÍS á Húsavík og Akureyri sameinaðar

Ákveðið hefur verið að sameina þjónustuskrifstofur VÍS á Akureyri og Húsavík. Þetta er hluti af nýrri framtíðarsýn fyrirtækisins til að einfalda þjónustu við viðskiptavini þannig að aukin áherlsa verði lögð á stafrænar lausnir.

Þjónustuskrifsttofur VÍS víðs vegar um landið verða sameinaðar í sex öflugar þjónustuskrifstofur á Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri, Sauðárkróki, Ísafirði og Reykjavík.

Breytingarnar, sem taka gildi 1. október næstkomandi,  hafa meðal annars í för með sér að þjónustuskrifstofa VÍS á Húsavík verður sameinuð skrifstofunni á Akureyri.

Helgi Bjarnason forstjóri VÍS segir að breytingarnar séu í takt við framtíðarsýn fyrirtækisins og að ætlunin sé að laga þjónustuna enn betur að þörfum viðskiptavina.

„Við sjáum skýr merki um að viðskiptavinir okkar vilja í síauknum mæli nota stafrænar leiðir til að eiga við okkur samskipti. Okkar trú er að sú eftirspurn fari vaxandi og kjarninn í okkar vegferð næstu misseri verður efla þjónustuna okkar á því sviði,“ segir hann.

Í fréttatilkynningu segir:

Samskipti við viðskiptavini fara í síauknum mæli fram í gegnum net og síma og samkvæmt þjónustukönnunum kalla viðskiptavinir eftir aukinni þjónustu á þeim vettvangi. Áherslubreytingum í þjónustu er ætlað að svara þessu kalli. VÍS hefur undanfarið unnið að því að gera þjónustu við viðskiptavini aðgengilegri og einfaldari með stafrænum leiðum. Sem dæmi um það geta viðskiptavinir VÍS nú tilkynnt öll tjón á Mitt VÍS.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó