Prenthaus

Þór/KA sigraði aftur í undankeppni Meistaradeildarinnar

Þór/KA sigraði aftur í undankeppni Meistaradeildarinnar

Mæta Ajax í úrslitaleik

Þór/KA spilaði sinn annan leik í undankeppni Meistaradeildar kvenna í kvöld. Liðið vann fyrsta leikinn á þriðjudaginn gegn Linfield 2-0.

Í kvöld mætti liðið Wexford Youths og vann sannfærandi 3-0 sigur.

Sanda María Jessen kom Þór/KA yfir strax á 5. mínútu og aðeins fjórum mínútum síðar bætti Hulda Björg Hannesdóttir öðru markinu við.

Á 18. mínútu lagði svo Sanda Mayor upp mark sem Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði.

Lokastaðan 3-0 fyrir Þór/KA

 

Bæði Þór/KA og Ajax hafa unnið báða sína leiki og því um algjöran úrslitaleik að ræða þegar liðin mætast í síðustu umferð riðilsins á mánudaginn um hvort liðið vinnur riðilinn og fer áfram í Meistaradeildina.

Staðan í riðlinum:

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó