Þrettán nemendur í kvöldnámi í rafvirkjun

Þrettán nemendur í kvöldnámi í rafvirkjun

Verkmenntaskólinn á Akureyri mun nú á vorönn bjóða í fyrsta skipti upp á kvöldnám í rafvirkjun. Kennt verður síðdegis fjóra daga í viku, frá mánudegi til fimmtudags. Þrettán nemendur eru í fysta námshópi kvöldskólans en um fjörutíu umsóknir bárust samkvæmt tilkynningu á vef skólans.

Haukur Eiríksson, brautarstjóri rafiðnbrautar VMA, segir á vma.is að það sé mjög ánægjulegt að unnt hafi verið að stíga þetta skref. Í ljósi margra umsókna hafi verið mikil þörf fyrir þetta nám. 

Sjá einnig: VMA býður upp á kvöldnám í rafvirkjun á vorönn

Haukur segir að námið sé þannig sett upp að nemendahópnum verði fylgt eftir til loka og síðan verði tekinn inn nýr hópur. Gangi áætlanir eftir sé horft til þess að þessir nemendur ljúki námi sínu í desember 2024 og að óbreyttu komi nýr hópur inn á vorönn 2025. Haukur segist vænta þess að þetta nám sé komið til að vera, enda sé rík þörf fyrir fleiri útskrifaða rafvirkja.

„Bakgrunnur nemendanna þrettán er mismunandi en margir hafa þegar lokið því bóknámi sem áskilið er til þess að ljúka rafvirkjun. Margir hafa umtalsverða starfsreynslu í faginu en hafa ekki haft tækifæri til þess að fara í nám og fá starfsréttindi. Áherslan í kvöldskólanum er því á faggreinarnar og á fyrstu tveimur önnunum verður námsyfirferðin tvöföld á við það sem er í dagskóla. Á síðari tveimur önnunum segir Haukur við það miðað að t.d. útskrifaðir rafeindavirkjar, sem vilja bæta við sig rafvirkjun, geti komið inn á námið, enda taka rafvirkjar og rafeindavirkjar sama grunnnámið,“ segir í tilkynningu á vma.is.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó