Tólfta sýning Álfkvenna í Lystigarðinum

Tólfta sýning Álfkvenna í Lystigarðinum

Vorsýning Álfkvenna opnar næsta laugardag, 3. júní. Þetta er í tólfta sinn sem að Álfkonur bjóða uppá ljósmyndasýningu við útisvæðið og veitingasöluna í Lystigarðinum á Akureyri. Hvert vor fer upp ný sýning með nýju þema. Sýningin fer fram í samvinnu við Lystigarðinn á Akureyri og LYST kaffihús.

Að þessu sinni takast Álfkonurnar á við vetrarríki, -birtu og form sem fanga augað yfir köldustu mánuðina. Sýningin hefst um sjómannadagshelgina og Álfkonur tileinka sýninguna íslenskum sjómönnum sem öðrum fremur kljást við vetrarstorma og veðrabrigði í störfum sínum

Álfkonur stendur fyrir ÁhugaLjósmyndaraFélag fyrir konur. Þær eru hópur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli. Álfkonur hafa starfað saman sem hópur frá árinu 2010 og hafa haldið fjölmargar ljósmyndasýningar víða um Akureyri, Eyjafjörð, á Húsavík og í Edinborg í Skotlandi.

Að þessu sinni eru þátttakendur :
Agnes Heiða Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Helga Haraldsdóttir,
Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó