Tónleikar hjá ungu hljómsveitinni Cohortis

Tónleikar hjá ungu hljómsveitinni Cohortis

Unga tónlistarkonan Sigrún María sem er nýbúin að gefa út sitt fyrsta lag, (Dancing on) The Edge of Reality, stígur á svið með hljómsveitinni sinni Cohortis miðvikudaginn 30. apríl þar sem þau munu flytja ný og frumsamin lög ásamt nokkrum tökulögum. Hljómsveitin samanstendur af Sigrúnu Maríu sem syngur og spilar á gítar, Heklu Sólveigu á hljómborði, Helgu Björg á bassa, Valdimar á gítar og Elíasi á trommum. Tónleikarnir verða haldnir í Hlöðunni, Litla-Garði á Akureyri, og byrja klukkan 20:00 og kostar 3000 krónur inn.

Hljómsveitin hefur komið fram á ýmsum viðburðum yfir síðastliðnu þrjú árin eins og til dæmis tónlistarkeppni Menntaskólans á Akureyri, Viðarstauk, þar sem þau lentu í þriðja sæti. Þau gætu ekki verið spenntari yfir því að halda loksins sína eigin tónleika þar sem þau geta flutt frumsömdu lögin fyrir framan fullan sal af fólki.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó