Tryggvi ekki valinn í nýliðavali NBA

Tryggvi Snær Hlinason var ekki valinn í nýliðavali NBA í nótt eins og vonir stóðu til. Nýliðavalið fór fram í New York í Bandaríkjunum.

Fram kemur í tilkynningu frá KKÍ að vonir hafi staðið til að hann yrði valinn í seinni umferð nýliðavalsins.

Tryggvi, sem stefndi á að komast að hjá liði í deildinni, lítur hins vegar jákvæðum augum á framhaldið þó að hann hafi ekki verið valinn.

„Það eru blendnar tilfinningar að hafa ekki verið valinn í kvöld. Ég undirbjó mig andlega undir að vera ekki valinn sem og að vera valinn. En núna þarf að líta fram á veginn og taka næstu skref á mínum ferli.“

Þrátt fyrir að hafa ekki verið valinn er NBA draumurinn enn á góðu lífi hjá Tryggva sem stefnir á að spila með NBA liði í framtíðinni.

„Að vera ekki valinn veitir mér ákveðin tækifæri. Ef rétta liðið sýnir mér áhuga og er tilbúið að vinna með mér þá get ég gengið til liðs við það lið. Mín körfuboltavegferð er rétt nýhafin og lít ég björtum augum á framtíðina,“ segir Tryggvi í tilkynningunni.

Sambíó

UMMÆLI