Tvöhundruð og tíu sjúkrabílar – Frumleg myndlistarsýning í Deiglunni um helginaLjósmynd: Gilfélagið.

Tvöhundruð og tíu sjúkrabílar – Frumleg myndlistarsýning í Deiglunni um helgina

Gestalistamaður Gilfélagsins í september, Michael Merkel, opnar sýningu á verkum sínum föstudagskvöldið 27. september næstkomandi, kl. 19.30 í Deiglunni. Sýningin verður svo opin á laugardag  og sunnudag frá kl. 14 – 17. Sýningin stendur aðeins yfir þessa einu helgi. Í tilkynningu Gilfélagsins segir eftirfarandi um sýninguna og listamanninn:

Michael sýnir verk af læknisfræðilegri efnisskrá sinni í Deiglunni. Á sýningunni verða teikningar byggðar á segulómunarmyndum (MRI) ásamt stóru safni hans af leikfangasjúkrabílum. Eins og titilinn gefur til kynna eru þetta verk með læknisfræðilegt þema og fjalla um varnarleysi, kreppu og leit að hjálp. Með notkun sinni á óhefðbundnum efnum og ólíkum listrænum nálgunum skoðar listamaðurinn táknmyndir sársauka og þjáningar.

Michael Merkel er fæddur í borginni Dresden árið 1987. Hann lærði fyrst til myndskera, því næst lagði hann stund á þýskar bókmenntir, menningarfræði og listasögu í Dresden og Wrocław (B.A.). Þaðan lá leið hanns í frekara nám í myndlist við Listaakademíuna í Wrocław, Bauhaus háskólann í Weimar og Listaakademíuna í Dresden (Dipolma, Meisterschüler). Michael hefur unnið að margvíslegum verkefnum í gegn um tíðina og sýnt list sína margoft bæði í Þýskalandi og á alþjóðavettvangi. Merkel hefur hlotið fjölmarga námsstyrki og styrki vegna listrænna verkefna. Hann er einnig hluti af stjórnendahópi GEH8, lista- og menningarmiðstöðvar í Dresden, þar sem hann hefur umsjón með dagskrá og almannatengslum.

Sambíó

UMMÆLI