Ungir bræður týndir á Akureyri – Lögreglan óskar eftir hjálp

Ungir bræður týndir á Akureyri – Lögreglan óskar eftir hjálp

Lögreglan á Akureyri óskar liðsinnis við að finna tvo unga bræður sem eru týndir á Akureyri. Lögreglan biðlaði til allra sem geta veitt upplýsingar á Facebook í dag.

Drengirnir eru klæddir m.a. í úlpur, annar í dökkbláa og hinn í ljósbláa. Þeir eru líklega með reiðhjólahjálma á höfði. Þeir sem geta veitt lögreglu upplýsingar eru beðnir að hafa samband í síma 444-2800.

Þeir fóru frá heimili sínu um morgun, föstudag, og sáust síðast á Drottningarbraut um kl. 07:00.

UPPFÆRT: Piltarnir eru fundnir. Lögreglan fékk fullt af gagnlegum upplýsingum og þakkar fyrir aðstoðina.

UMMÆLI