Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2018. Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni, auk þess veitir sjóðurinn stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og miðast styrkveitingar við árið 2018.

Frekari upplýsingar um umsóknarferlið, úthlutunarreglur 2018, áherslur sjóðsins og Sóknaráætlun Norðurlands eystra er að finna á heimasíðu Eyþings www.eything.is og atvinnuþróunarfélaganna www.afe.is og www.atthing.is.

Sækja þarf um rafrænt á heimasíðu Eyþings með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember nk. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs á heimasíðu Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna.

Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra veitir, Baldvin Valdimarsson baldvin@afe.is sími 460 5701 Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þær áherslur og skilyrði sem í samningum felast og reglur um styrkhæfan kostnað.

Starfsmenn sjóðsins verða með viðveru og vinnustofur á starfssvæðinu í tengslum við úthlutunina þar sem veitt verður ráðgjöf við gerð umsókna. Viðvera starfsmanna uppbyggingarsjóðs verður á eftirfarandi stöðum:

• Akureyri 13. nóv. kl. 13.00-16.00 Skrifstofu Eyþings
• Dalvíkurbyggð 14. nóv. kl. 10.00-12.00 Menningarhúsinu Bergi
• Ólafsfjörður 14. nóv. kl. 13.00-14.00 Bókasafni Fjallabyggðar Ólafsfirði
• Siglufjörður 14. nóv. kl. 14.30-16.00 Ráðhúsinu Siglufirði
• Akureyri 15.nóv. kl. 9.00-11.00 Skrifstofu Eyþings
• Grenivík 15. nóv. kl. 14.00-15.00 Skrifstofu Grýtubakkahrepps
• Þórshöfn 16. nóv. kl. 10.30-12.00 Menntasetrinu á Þórshöfn
• Raufarhöfn 16. nóv. kl. 13.00-15.30 Skrifstofu Norðurþings
• Kópasker 16. nóv. kl. 15.30-17.00 Skrifstofu Norðurþings
• Reykjahlíð 17. nóv. kl. 8.30-10.00 Skrifstofa Skútustaðahrepps
• Laugar 17. nóv. kl. 10.30-12.00 Seigla – miðstöð sköpunar
• Húsavík 17. nóv kl. 13.00-15.00 Skrifstofu Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga

Frekari upplýsingar veita:
Baldvin Valdemarsson á netfang baldvin@afe.is eða í síma 460 5701
Ari Páll Pálsson netfang aripall@atthing.is sími 464 0416
Vigdís Rún Jónsdóttir netfang vigdis@eything.is

UMMÆLI