Varað við svifryksmengun á Akureyri í dag

Varað við svifryksmengun á Akureyri í dag

Varað er við miklu svifryki á Akureyri í dag. Kalt er í veðri, hægur vindur og götur að mestu þurrar og því má búast við að svifryksmengun fari yfir heilsuverndarmörk. Þettta kemur fram á vef bæjarins í dag.

Þar segir að þeir sem séu viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni við miklar umferðargötur.

Hér er hægt að sjá upplýsingar um svifryk í rauntíma, samkvæmt loftgæðamæli við Strandgötu á Akureyri.

„Besta leiðin til að koma í veg fyrir loftmengun er að fólk nýti sér vistvænar samgöngur, eins og að ganga, hjóla eða samnýta bíla. Þá er auðvitað frítt í strætó á Akureyri og er tilvalið að nota almenningssamgöngur á dögum sem þessum. Þannig fækkum við bílum á götunum og drögum úr svifryki,“ segir á Akureyri.is

UMMÆLI