Þrjár bensínstöðvar á Akureyri hafa lækkað eldsneytisverð sitt í vikunni. Á mánudaginn var greint frá því hér á Kaffinu að verðið lækkaði á eldsneytislítranum hjá Atlantsolíu við Baldursnes niður í 185,5 krónur.
Sjá einnig: Atlantsolía lækkar eldsneytisverð á Norðurlandi til muna
Í kjölfarið brugðust Orkan og ÓB við á Akureyri og lækkuðu sitt eldsneytisverð í samræmi við verðlækkanir Atlantsolíu. Stöðvar sem hafa lækkað eldsneytisverðið eru Atlantsolía við Baldursnes, Orkan á Mýrarvegi og ÓB við Hlíðarbraut.
Nú bjóða þessar stöðvar upp á eldsneytisverð í samræmi við það sem hefur viðgengist á stöðvum á höfuðborgarsvæðinu í nágrenni við Costco í Garðabæ.
Verðið er nú lægst hjá Orkunni sem býður lítrann á 185,4 krónur en verðið er 185,5 krónur á hinum tveimur stöðunum.
Í umfjöllun um verðstríðið í Morgunblaðinu segir að til samanburðar sé almennt verð á bensíni hjá Orkunni á Hörgárbraut 215,6 krónur og hjá Atlantsolíu á Glerártorgi og ÓB á Sjafnargötu 215,7 krónur. Þá er lítraverð hjá N1 á Akureyri 214,9 krónur.
UMMÆLI