beint flug til Færeyja

Vestnorden á Akureyri á næsta ári

Vestnorden á Akureyri á næsta ári

Í gærkvöld var tilkynnt um að næsta Vestnorden ferðakaupstefna verður haldin á Akureyri, haustið 2025.

Venjan er að tilkynnt sé um næstu staðsetningu í lokakvöldverðinum, en í ár var Vestnorden í Færeyjum. Markaðsstofa Norðurlands var þar með tvo fulltrúa, þau Arnheiði Jóhannsdóttur og Halldór Óla Kjartansson sem kynntu allt það sem norðlensk ferðaþjónusta býður upp á.

Vestnorden er mikilvægasti vettvangur viðskipta í ferðaþjónustu á Norður – Atlantshafssvæðinu. Á kaupstefnunni koma saman ferðaþjónustufyrirtæki frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi til að kynna vöruframboð sitt fyrir erlendum ferðaþjónustuaðilum sem sækja kaupstefnuna. Kaupstefnan er samstarfsverkefni Íslands, Færeyja og Grænlands undir hatti NATA, North-Atlantic Tourism Association.

Vestnorden var síðast haldin á Akureyri árið 2018, en kaupstefnan er haldin annað hvert ár á Íslandi og hin árin til skiptis í Færeyjum og á Grænlandi. Gera má ráð fyrir um 600 gestum, en þeir eru ferðaþjónustuaðilar frá löndunum þremur og endursöluaðilar sem koma frá yfir 30 löndum víðsvegar um heiminn.

Frétt: Markaðsstofa Norðurlands

Sambíó

UMMÆLI