Viðgerðir á gervigrasinu í BoganumMynd: Páll Jóhannesson

Viðgerðir á gervigrasinu í Boganum

Viðgerðir á gervigrasinu í Boganum á Akureyri hófust í gær og munu halda áfram á miðvikudag og fimmtudag. Síðast var skipt um gervigras í Boganum árið 2016.

Ástand vallarins hefur verið gagnrýnt undanfarið og Akureyrarbær fékk nýverið ábendingar um að ástand vallarins hefði versnað til muna og þónokkrar skemmdir væru á gervigrasinu. Það stóð til að hefja viðgerðir á grasinu í desember en það tafðist vegna seinkana á efni.

„Nú er ráðist í nauðsynlegar lagfæringar í góðu samráði við þau íþróttafélög sem standa fyrir æfingum í húsinu. Fyrstu viðgerðir hófust raunar í gær en reiknað er með að megnið af verkefninu taki tvo daga. Stefnt er að því að gert verði við hluta vallarins á morgun, miðvikudag, og hluta á fimmtudag,“ segir í tilkynningu Akureyrarbæjar.

Sambíó

UMMÆLI