Prenthaus

Viðtalið: Aðalsteinn Árnason yfir Grænlandsjökul

Viðtalið: Aðalsteinn Árnason yfir Grænlandsjökul

Aðalsteinn Árnason er gestur Ásgeirs Ólafssonar í hlaðvarpsþættinum Viðtalið þessa vikuna. Í þættinum ræða þeir ferð sem að Aðalsteinn fór yfir Grænlandsjökul á dögunum. Hlustaðu á viðtalið í spilaranum hér að neðan.

„Steini kom til okkar og segir okkur alla söguna hvernig hann upplifði för sína á dögunum yfir Grænlandsjökulinn ásamt 7 öðrum. 31 dagur, 500 kílómetrar og allt sem því fylgir. Einnig þá rifjar hann upp slysið á sama jökli 22 árum fyrr. Þar sem hurð skall nærri hælum og aðeins 5 metrar skáru um það hvort hann lifði eða ekki. 
Hver lifir af 25 metra frjálst fall á íssyllu og stendur uppréttur eftir það og hvað þá heldur… tekur þátt í björgunarleiðangrinum sem var ástæða komu hans á jökulinn í það skipti? Alveg einstök frásögn.
Frábært viðtal við Steina sem er strax farinn að plana hvað sé næst. Takk fyrir að hlusta á Viðtalið,“ segir Ásgeir um þáttinn.

Sambíó

UMMÆLI