Vikudagur breytir um nafn og sameinast Skarpi

Vikudagur breytir um nafn og sameinast Skarpi

Í næstu viku verður breyting á útgáfustarfsemi Ásprents þegar Vikudagur og Skarpur sameinast í nýtt blað undir heitinu Vikublaðið. Frá þessu var greint á vef Vikudags í gær.

Einnig mun opna nýr vefur samhliða nýja blaðinu, www.vikubladid.is. Ritstjóri nýja blaðsins verður Þröstur Ernir Viðarsson sem hefur ritstýrt Vikudegi frá árinu 2014.

„Þetta eru sannarlega tímamót í útgáfu fjölmiðils á Norðurlandi með spennandi og krefjandi áskorunum. Óhætt er að fullyrða að með sameiningu blaðanna felast mörg tækifæri í fjölmiðlun. Fleiri pennar munu koma að blaðinu sem þýðir fleiri sjónarhorn og fjölbreyttari efnistök. Lesendum til góða,“ segir á vef Vikudags.

„Staðarmiðlar gegna ákaflega mikilvægu hlutverki í fjölmiðlaflórunni. Þeir eru vettvangur fyrir umræðu í nærsamfélaginu, fjalla um málefni líðandi stundar, hvort sem það eru fréttir, mannlíf eða menning.Landsdekkandi miðlar einblína oft um of á höfuðborgarsvæðið og því er mikilvægt að staðarmiðlar séu til staðar til að fylla upp í það gap sem landsmiðlar skilja eftir. Rannsóknir hafa líka sýnt að fólk sem nýtir sér staðarmiðla er meira upplýst um nærsamfélagið og þar af leiðandi líklegra til að taka virkan þátt í samfélaginu. Fjölmiðlar eiga að endurspegla samfélagið og til að lesendur fái sem réttustu myndina af nærsamfélaginu þurfa staðarmiðlar að fjalla bæði um það sem vel er gert og einnig það sem miður fer í samfélaginu. Rauði þráðurinn í hinu nýja blaði verður: Fréttir, mannlífsefni, viðtöl, menning og íþróttir.“

Mynd: Vikudagur.is

Sambíó

UMMÆLI