Vill auka forvarnir þegar kemur að neyslu orkudrykkja á Akureyri

Vill auka forvarnir þegar kemur að neyslu orkudrykkja á Akureyri

Eins og kom frá í pistli frá forvarnarfulltrúum Akureyrar á Kaffinu í vikunni er neysla unglinga á Akureyri á orkudrykkjum mun meiri en hjá jafnöldrum þeirra annars staðar á landinu. Alfa Aradóttir, deildarstjóri forvarnar- og frístundadeildar Akureyrarbæjar, segir ástæðu til að hafa áhyggjur og vill auka forvarnir þegar kemur að drykku orkudrykkja. Þetta kemur fram á Vísi í dag.

Sjá einnig: Orkulitlir unglingar á Akureyri?

Alfa segist ekki átta sig á því af hverju þetta sé svona mikið á Norðurlandi en telur að smæð samfélagsins geti spilað þar inn í.

Árið 2017 seldust tæplega 5,2 milljónir 330 milli lítra dósa af vinsælustu orkudrykkjunum á Íslandi. Rannsóknin Ungt fólk sem framkvæmd er af Rannsóknarmiðstöðinni Rannsókn og greining sýnir að unglingar á Akureyri drekki töluvert meira af orkudrykkjum en jafnaldrar þeirra víða um land.

Þrjátíu prósent unglinga á Akureyri drekka orkydrykki daglega samkvæmt rannsókninni en landsmeðalatalið er um tíu prósent. Þá segjast 48 prósent unglinga sem fæddir eru árið 2001 á Akureyri drekka einn eða fleiri orkudrykki á dag miðað við fjórtán prósent landsmeðaltal jafnaldra.

„Við teljum enga augljósa skýringu á þessu. Hugmyndir eru um tísku og þetta er minni og kannski einsleitari hópur hvað svona tískubylgju varðar. Svo er þetta líka bara spurningu um hvort foreldrar séu frjálslyndari gagnvart þessu hér en annarsstaðar, ég veit það ekki,“ segir Alfa í samtali við Vísi.

UMMÆLI