Vinabæjarsamstarfi við Múrmansk slitiðRáðhúsið á Akureyri. Mynd: Bjarki Brynjólfsson.

Vinabæjarsamstarfi við Múrmansk slitið

Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag að slíta vinabæjarsamstarfi við Múrmansk í Rússlandi og að Akureyrarbær segi sig úr Northern Forum samtökunum sem eru að stærstum hluta samtök sveitarfélaga í Rússlandi. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Sjá einnig: Akureyrarbær hyggst slíta vinabæjarsamstarfi við Murmansk

Áður hafði verið fjallað um málið í bæjarráði en ályktun bæjarstjórnar er þessi:

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að taka undir bókun bæjarráðs, sem fordæmir innrás rússneskra stjórnvalda í Úkraínu og samþykkir þess vegna að slíta vinabæjarsamstarfi við Múrmansk. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að Akureyrarbær segi sig úr samtökunum Northern Forum.

UMMÆLI