Vísukorn lífskúnstnersins Elmars Sindra

Vísukorn lífskúnstnersins Elmars Sindra

Samkvæmt nútímamálsorðabók Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er lífskúnstner „einstaklingur, t.d. listamaður eða menntamaður, sem lifir frjálsu lífi óbundinn af reglufestu vinnandi manna“. Lýsingin á ágætlega við grunnskólakennarann og tónlistarmanninn Elmar Sindra Eiríksson.

Elmar Sindri tilkynnti á facebook þann 2. nóvember sl. að hann ætlaði sér að birta frumsamin vísukorn daglega út árið, þrátt fyrir enga eftirspurn. „60 dagar eftir af þér einstaka og eftirminnilega 2020. Vegna engrar áskorunar ætla ég að telja niður til áramóta og setja inn vísnasnöpp eða vísnamyndir sem ég hef hnoðað saman undanfarin ár. “

Þrír fjórðungar daganna 60 eru nú liðnir. Samkvæmt talningu Grenndargralsins hefur Elmar því staðið skil á 45 skömmtum í bundnu máli á fésbókinni sinni. Kennir ýmissa grasa í ljóðum Elmars og óhætt er að segja að þau fylli allan tilfinningaskalann, allt frá sorginni yfir dauða Diego Maradona til gleðinnar sem fylgir því að gæða sér á góðum sviðakjamma. Ljóðin eru myndskreytt.

Á heimasíðu Grenndargralsins getur að líta nokkur vel valin sýnishorn af ljóðum Elmars Sindra.

Heimild. Grenndargralið.

UMMÆLI

Sambíó