Where Ends Meet í Deiglunni

Where Ends Meet í Deiglunni

Gestalistamaður Gilfélagsins, Mihaela Hudrea sýnir afrakstur dvalar sinnar á Akureyri með sýningunni Where Ends Meet í Deiglunni um næstu helgi, 25. og 26. júní.

Where Ends Meet
Opnun: 14:00 – 17:00 laugardaginn 25. júní
Opið frá kl. 14:00 – 17:00 sunnudaginn 26.júní
Deiglan, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri

Mihaela Hudrea er fædd árið 1989 í Rúmeníu og er með MA gráðu frá KASK – Royal Academy of Fine Arts, Gent, Belgíu og BA frá Hönnunar og listaháskólanum Cluj-Napoca í Rúmeníu.

Í verkum sínum rannsakar Mihaela Hudrea umheiminn á meðan hún varpar fram grundvallarspurningum um veruleikann, tilveruna og skynjun. Innblásin af þeim hugtökum sem eru könnuð í heimspeki og vísindum er nálgun hennar með málun, teikningu og innsetningum. Sem listamaður veltir hún fyrir sér tengslum okkar við jörðina og alheiminn í ljósi samtíma menningar og í sögulegu samhengi. Samband milli okkar, okkar og tímans. Með því að ráða í kerfi sjónar og skynjunar gefur hún verkunum hlutverk, þau verða rými þar sem við getum tengst alheiminum. Mihaela mun útvíkka þessa nálgun og gera ný verk í samhengi dvalarinnar í Gestavinnustofu Gilfélagsins.

UMMÆLI